Gamlar myndir
25.03.2006 00:47:31 / bekkur

halló.. er eittthver hér???

jæja.. best að drita nokkrum orðum hér fyrst þessi síða er enn á lífi :)

hvar eru allar myndirnar sem voru teknar í Flatey?? Ef þú hefur myndasíðu með myndum af bekkjarmótinu endilega að setja tengil á síðuna.. það vilja allir fá að skoða ekki satt :)

af mér að frétta er ósköp fátt. er búin að flytja enn einu sinni ;) og er mætt á sundabakkann. er atvinnulaus í atvinnuleit en það hefur ekki gengið neitt vel miðað við atvinnuástand hér í hólminum.. aðeins um sumarstörf að ræða eða bilaða vaktavinnur. fyrst maður er komin með börnin í heiminn er ekki svo einfalt að fara í hvaða vinnu sem er... en það styttist í að börnin fari að hugsa um sig sjálf.. daman er nú þegar byrjuð í skóla,verður hún 7 ára á þessu ári og orðin sko súper sjálfstæð og neitar að koma með mér í búð eða á rúntinn.. vill frekar hanga heima í tölvunni eða dunda sér í eitthverju öðru.. og drengurinn er nýorðinn 3 ára og er mikið fjör í honum... orðinn sko handóður dauðans og sullar mikið,þetta fylgir þessu víst ;) ... úff.. maður man eftir því eins og það hafi gerst í gær þegar ég var ólétt í 10.bekk. 8| en ég tel mig vera búin með barneignapakkann.. alveg nóg að hafa sitthvort kynið :)

jæja ágætu bekkjarsystkyn.. hvernig væri nú að lífga aðeins upp á þessa síðu og rita nokkur orð og leyfa öðrum að fylgjast með :)

ble ble
Guðrún Svana

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 19:45:46 / bekkur

HÆHÆ

Listi yfir síðustu færslur Fyrirsögn Dags Aðgerð hæ og gleðileg jól 1. 2006 - kl: 14:33 Breyta / Eyða ömulegt nýtt ár Nýtt Ár 25. 2006 - kl: 16:07 Breyta / Eyða De danske dage 16. 2005 - kl: 14:21 Breyta / Eyða Gengur sko ekki 7. 2005 - kl: 18:59 Breyta / Eyða Jahh krímer hvar... 20. 2005 - kl: 21:05 Breyta / Eyða :D :) :D :) 20. 2005 - kl: 20:49 Breyta / Eyða 3 dagar til stefnu og dagskráin hljómar svona 15. 2005 - kl: 15:48 Breyta / Eyða myndir 15. 2005 - kl: 08:20 Breyta / Eyða Veðurspá næstu daga 14. 2005 - kl: 12:04 Breyta / Eyða ATHUGIÐ!! 13. 2005 - kl: 21:18 Breyta / Eyða smá villa 10. 2005 - kl: 14:23 Breyta / Eyða Flatey:) 10. 2005 - kl: 14:21 Breyta / Eyða Züdtz mi låd'n.... 9. 2005 - kl: 17:32 Breyta / Eyða dudduru ;) 8. 2005 - kl: 22:09 Breyta / Eyða skráning öll að koma til 31. 2005 - kl: 15:54 Breyta / Eyða Áminning!! 29. 2005 - kl: 20:02 Breyta / Eyða Kjellinn segir Sælar 23. 2005 - kl: 14:23 Breyta / Eyða ????? 18. 2005 - kl: 13:56 Breyta / Eyða ? 12. 2005 - kl: 14:35 Breyta / Eyða Þið fáið bréf í þessari eða í næstu viku 9. 2005 - kl: 12:17 Breyta / Eyða

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 14:33:28 / bekkur

hæ og gleðileg jól

'eg veit að þetta kemur dálítið seint en ég er búinn að vera á flakki um skóga afríku og er búinn að lenda í mörgu æsi spennandi hlutum ég lenti í slag við frumbyggja Hululalla Flokksins en þeir éta nautspunga með súrsætri kartöflu sósu Og smá vistvæn kanillauf af múmínamí tré bjarnanna sem finnst aðeins á helstu hættusvæðum hýenuhellis í seyðisfirði

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 16:07:42 / bekkur

ömulegt nýtt ár Nýtt Ár

HæHæ

BæBæ

See ya


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2005 14:21:16 / bekkur

De danske dage

Skemmti fólk sér ekki vel á þeim dönsku?  Feitt djamm og sprell.. þó að dönskukunáttan frá Stellu og Mr. Óla fengi ekki alveg að njóta sín!:lol:

Hvernig gengur annars með myndirnar frá bekkjarmótinu.. er verið að beita hugarorkunni við að framkalla þær?? Það væri allavega gaman að rifja upp stemninguna úr eyjunni.. frá þessu snilldar bekkjarmóti!:D Svo er það bekkjarmót eftir 2 ár.. er haggi?!?;)  Hitti gamla bekkjarfélaga, sem voru ráfandi um bæinn um helgina.. og þeir ætla sko ekki að missa af næsta móti!!:haha:

heyrumst ..

kv. Kristín Inga


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2005 18:59:06 / bekkur

Gengur sko ekki

Er búin að vera að reyna að setja myndir inn en þetta er eitthvað bilað hjá mér :(...og ég er sko ekki sú besta til þessa að laga eitthvað svona tæknidót átti ábiggilega að fæðast hundrað árum fyr;)...en nóg með það ég sá nefninlega að 84 árgangurinn er búin að setja inn myndir af sínu bekkjarmóti og Það var sko haldið seinna, megum ekki láta þau slá okkur við;)....en ef einhver annar kann betur á þetta en ég þá væri mjög gaman að rifja upp flatey:D....væri líka gaman að sjá meiri hreyfingu á síðuni

en jæja nóg í bili kveðja me me;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2005 21:05:14 / bekkur

Jahh krímer hvar...

Já, ég vil endilega þakka öllum fyrir klikkað kvöld, ég hef ekki skemmt mér svona vel í langann tíma...

Nú þurfa allir bara að skella myndunum sem þeir tóku inn á síðuna og deila með öllum...

züdtz...

Tábergið...

» 47 hafa sagt sína skoðun

20.06.2005 20:49:34 / bekkur

:D :) :D :)

Jæja.. er sjóveikin og þvinkan farin úr fólki?? :lol:
Ég vil bara þakka fyrir góða mætingu og góða skemmtun á þessu fyrsta bekkjarmóti okkar
og  vonandi verður aftur svona bekkjarmót eftir eitthver ár..
(má samt ekki bíða of lengi með það ;) )
það var skipað í nefnd.. var það ekki Sigrún, Kristján Lár og....
var ekki einn í viðbót?? ég hreinlega man það ekki :S

Takk takk
kveðja
Guðrún Svana

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.06.2005 15:48:57 / bekkur

3 dagar til stefnu og dagskráin hljómar svona

JÆJA.. Bónusferðin búin og er allt klárt nema bjórinn.. búin að taka frá 8 kassa og verður gengið frá því á morgun. það sem var keypt í Bónus var Pulsur og kryddað svínakjöt. pipar+hvítlaukssósa, svo verður ferskt salat og kartöflusalat að hætti Helga. keyptum einnig nokkra poka af snakki.
en annars hljómar laugardagurinn þannig ::::
Þið mætið niður á Skriftofu Sæferða kl 15:30 og náið í miðana ykkar í Baldur. Það verður nafnalisti á staðnum en þið verðið að segja að þið séu að fara með þessum árgangi og miðarnir eru stílaðir á Kristján Lár. Svo bara rölta niður á Baldursbryggju og farið með Baldri kl 16:00.
ég hringdi í veitingastaðinn Vog í Flatey og tékkaði á málum þar og er opið 9-21 um helgina. þar er hægt að fá súpu og samloku, ís,sleikjó eða peznammi ;) sjoppan er ekki alveg opnuð og er nammið ekki komið á staðinn nema þaðð sem ég nefndi hér áður. en rétt að geta þess að Vogur tekur bara kreditkort og peninga,, ekki debet.

Annars er bara að taka tjaldið,svefnpokann,koddann,áfengi og eitthvað smá nesti.

Kannski rétt að minna á að Ríkið(Vínbúðin) er lokuð á föstudaginn og líka Bónus..(þá meina ég hér í Stykkishólmi)

Ég,Addi,Stjáni,María og Kári förum á föstudeginum út í Flatey með allt dótið (mat og áfengi) og munum við taka á móti ykkur þegar þið komið út í Flatey. Annars þeir sem vilja fara snemma geta farið með Baldri kl 9 laugardagsmorguninn og þá þurfið þið að vera mætt kl 8:30 á skriftofuna að sækja miða í Baldur.
Annars ef þið hafið eitthverjar spurninga endilega að hafa samband við mig s:8618066

kv
GuðrúnSvana


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2005 08:20:10 / bekkur

myndir

hvernig væri að allir myndu tína saman gamlar myndir úr denn brjáluðu danmörkuferðini og soleiðis, á nokkrar t.d. af  Krisrjáni, óla og man ekki hver þriðji var í skrautlegu danmörku fötunum;)...nauðsynlegt að rifja svona upp :)...endilega commentið þetta....sjáums svo hress í vonandi sól8) á laugardagin

ble ble emi


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.06.2005 12:04:55 / bekkur

Veðurspá næstu daga

Fimmtudag og föstudag: Breytileg átt, 3-8 m/s og skúrir eða dálítil rigning. Hiti 10- 17 stig, en heldur svalara við norður- og austurströndina.
Laugardag og sunnudag: Norðaustlæg átt og rigning, en úrkomulítið vestanlands. Lítið eitt kólnandi veður.

Þetta þýðir að við eigum að taka með okkur regngallann :) en auðvitað getur þessi spá eitthvað breyst..

kv
Guddan

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2005 21:18:30 / bekkur

ATHUGIÐ!!

5 dagar til stefnu og allt að verða klárt.

*Baldur fer frá bryggju kl 16:00 á laugardaginn og þurfið þið bara að láta vita að þið eru að fara með þessum árgangi út í Flatey. Nafnalisti verður kominn í hendur starfsmanna á Baldri. Þannig að það væri ágætt að allir myndu mæta upp úr kl 15:30 og hópa alla saman.

*Ég,Addi og Kristján Lár verðum komin í Flatey og munum við taka á móti ykkur þegar þið komið þangað með Baldri.

*Á morgun ætlum ég,Stjáni og Helgi að fara í Bónus og versla allt á grillið. afgangur verður svo notaður í að kaupa áfengi
(ath. aðeins verður keyptur bjór.)
*Við mælum samt með að fólk komi sjálft með áfengi, til öryggis.. kemur betur í ljós eftir Bónusferðina hversu mikill afgangur verður
til að kaupa áfengi.

Svo bara að koma með tjaldið,svefnpokann og góða skapið :D
og auðvitað gítarana, þeir sem spila á svoleiðis ;)

kv
Guðrún Svana

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2005 14:23:12 / bekkur

smá villa

átti að vera getum við gist:lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2005 14:21:22 / bekkur

Flatey:)

ég var að spá hvort að það væri eitthvað sérstak sem að við þyrtum að taka með okkur annað en öl og góða skapið?...þá meina ég tjald og svona eða getum vist einhverstaðar inni á flatey? eða kanski þurfum við ekkert að sofa;)...Hlakka mikið til að hitta ykkur:haha:....chá emma

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2005 17:32:15 / bekkur

Züdtz mi låd'n....

var að pæla hvort maður ætti ekki að grípa gítarinn pottþétt með sér... Er nokkuð vit í því að skilja hann eftir heima... veit að það verða sennilega gítarar þarna en því fleiri því betra er það ekki... jújú ég gríp hann með...

Ég verð bara að segja það að maður sé orðinn pínu spenntur yfir þessu... veit ekki hvernig það er almennt... Er ekki spenningur í fólki???

En ég sé ykkur öll í Flateyinni í eftir rétt rúma viku....

Kv. Tábergið....


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3